Hjálparsveit skáta Aðaldal
    <language>is</language>
Ótitlað
      <description>Vindur 21.02.2018 kl.08:00</description>
Ótitlað
      <description>Aðalfundur HSA var haldinn í húsnæði sveitarinnar í gærkvöldi 11.10.2016</description>
Ótitlað
      <description>LögHjálparsveitar Skáta Aðaldal.1. gr. Sveitin heitir Hjálparsveit skáta Aðaldal, skammstafað H.S.A. Heimili og varnarþing H.S.A. er Aðaldalur S.-Þing.2. gr.Tilgangur hjálparsveitarinnar er að vinna að björgun manna og veita hvers konar aðstoð í neyðartilfellum, þar sem þekking og tæki H.S.A. geta komið að notum, taka þátt í hvers konar slysavörnum og veita félögum sínum fræðslu og þjálfun til að sveitin nái sem best markmiði sínu.3. gr.Merki sveitarinnar er grænn kross á rauðgulum fleti með grænum hring utan um.4. gr.Hver sá sem æskir inngöngu í H.S.A. skal útbúa umsókn skriflega og senda til sveitarinnar. Stjórnin tekur umsóknirnar til úrskurðar á næsta stjórnarfundi og tilkynnir hún umsækjendum svo fljótt sem verða má niðurstöður sínar. Umsækjendur skulu vera fullra fimmtán ára.5. gr. Réttindi fullgilds sveitarfélaga eru: a. Taka þátt í starfsemi sveitarinnar svo sem leitum, æfingum og fræðslustarfsemi b. Að vera tryggður við störf í þágu sveitarinnar.6. gr.Skyldur fullgilds sveitarfélaga eru:Halda lög þau og reglur, sem aðalfundur, sveitarfundur eða stjórnarfundur H.S.A. kunna að setja.Taka þátt í þeirri starfsemi sem stjórnendur sveitarinnar kunna að fela honum, mæta til þeirrar starfsemi stundvíslega og tilkynna tímanlega stjórnendum sveitarinnar forföll ef hann getur ekki mætt á tilsettum tíma og tilgreini ástæður.Bera einkenni sveitarinnar við störf í þágu hennar.7. gr.Aðalfund H.S.A. skal halda fyrir lok mars ár hvert. Hann hefur æðsta vald í málefnum sveitarinnar og tekur þær ákvarðanir um starfsemi sveitarinnar sem þörf er á. Hann er löglegur ef til hans er boðað skrilega með minnst viku fyrirvara og eigi færri en 10 fullgildir félagar sækja hann. Í fundarboði skal tilgreina hvort lagabreytingar séu á dagskrá. Fáist ekki nægileg fundarsókn í fyrstu tilraun skal boða til annars fundar með sama hætti og er hann löglegur hversu fáir sem þá mæta.Verkefni aðalfundar H.S.A.Sveitarforingi setur fundinn og stýrir kosningu fundarstjóra.Fundarstjóri skipar fundarritara.Inntaka nýrra félaga.Fráfarandi stjórn gefur skýrslu um starf sveitarinnarSkýrslur nefnda.Gjaldkeri leggur fram reikninga sveitarinnar endurskoðaða.Kosningar.SveitarforingjaMeðstjórnendaVarastjórnar.Endurskoðenda.Varaendurskoðenda.Önnur mál.Æski tíu eða fleiri fullgildir félagar sveitarinnar eftir aðal- eða sveitarfundi ber stjórn hennar að boða til hans á löglegan hátt þegar í stað. Á fundum H.S.A. gilda almenn fundarsköp og í lok fundar skulu fundarstjóri og fundarritari undirrita fundargerð.8. gr.Stjórn sveitarinnar er skipuð fimm mönnum, Sveitarforingja og fjórum meðstjórnendum. Eru þeir kosnir á aðalfundi , bundinni kostningu með einföldum meirihluta atkvæða. Á sama hátt skal kjósa menn í varastjórn. Kjörtímabil sveitarforingja er eitt ár, en meðstjórnenda og varastjórnar tvö ár. Kostningu skal fyrsta árið haga þannig að fyrst eru tveir meðstjórnendur kotnir til tveggja ára og tveir til eins árs, en síðan tveir til tveggja ára á hverjum aðalfundi. Engan má kjósa í stjórn, nema hann sé fullgildur félagi í sveitinni. Stjórnin kýs úr sínum hópi aðstoðarsveitarfotingja, gjaldkera og ritara. Sveitarforingi boðar til stjórnarfundar með tveggja daga fyrirvara og stjórnar þeim. Stjórnarfundur skal haldinn mánaðarlega eða oftar ef þörf krefur og er lögmætur ef þrír stjórnarmenn eru mættir. Úrslitum mála ræður fjöldi atkvæða. Allar fundargerðir stjórnar skulu ritaðar í gerðabók og skrifa viðstaddir stjórnarmenn undir þær. Stjórn sveitarinnar má skipa í nefndir sér til aðstoðar t.d. í fjáröflunarskini. Vald og verksvið nefndanna skal nánar ákveðið af stjórninni með reglugerð. Stjórnin getur falið nefndum að gefa aðalfundi skýrslu um hin sérstöku mál. Nefndirnar skal kjósa á fyrsta fundi eftir aðalfund, eða eftir því sem þörf krefur. Stjórnin skipar formann hverrar nefndar, en að öðru leyti skipta þær með sér verkum.9. gr.Endurskoðun reikninga hafa á hendi tveir menn, sem kosnir eru á aðalfundi. Einnig skal kjósa á sama fundi tvo varaendurskoðendur. Eru endurskoðendur kosnir til eins árs í senn. Endurskoðendur skulu sannprófa reikninga sveitarinnar og að þeir beri saman við bækur hennar, enda eigi þeir aðgang að öllum bókum og skjölum hvenær sem er og er stjórninni skylt að veita nauðsynlegar upplýsingar. Endurskoðendur bera ábyrgð fyrir aðalfundi. Reikningsár sveitarinnar er almanaksárið. Reikningsskilum skal ljúka svo tímanlega að endurskoðun geti farið fram áður en aðalfundur er haldinn. Á aðalfundi skal ávalt leggja fram endurskoðaða reikninga fyrir liðið ár og taka ákvarðanir um þá. Nú fellir aðalfundur tillögu um samþykki reikninga og getur hann þá ákveðið að yfirskoðun skuli fara fram eftir þeim reglum sem fundurinn setur. Að þeirri yfirskoðun lokinni skal boða til framhaldsaðalfundar sem tekur ákvörðun um reikningana.10. gr. Halda skal skrá yfir mætingar við æfingar og störf í þágu sveitarinnar og skal hún þannig útbúin að sjá megi hverjir hafa verið boðaðir til starfa og hverjir hafa mætt, hverjir hafa verið fjarverandi og hverjir hafa boðað lögmæt forföll að mati stjórnenda og hverjir hafa ekki sinnt kalli.11. gr.Brot á lögum þessum eða reglum sveitarinnar getur varðað brottvísun úr sveitinni að mati stjórnar. Vísa má slíkri niðurstöðu til úrskurðar sveitarfundar.12. gr.Leggist sveitin niður skulu allar eignir hennar afhentar hreppsnefnd Aðaldælahrepps, enda ráðstafi hún þeim itl stofnunar nýrrar sveitar eða björgunarsveitar eða á annan hátt til almannavarna.13. gr. Lögum þessum má ekki breyta nema á aðalfundi H.S.A. og öðlast lagabreytingar þegar gildi ef 2/3 hlutar atkvæðisbærra fundarmanna greiða þeim atkvæði. Breytingatillögur skulu hafa borist skriflega til ritara H.S.A. svo tímanlega fyrir aðalfund að hægt sé að geta þeirra í fundarboði.  Síðast breytt á aðalfundi H.S A. 29. Apríl 1996.</description>
Nýr (gamall) bíll
      <description>Í HSA fréttum er það helst, að á dögunum keyptum við bíl. Þetta er gamal Ford 350 og er hann með tveggja sleða palli  Loftpúðafjöðrun er að aftan svo bíllin er afar umgengilegur til lestunar og losunar þegar hleypt hefur verið úr púðunum. Bíll þessi var í eigu björgunarsveitarinnar Héraðs, og fáum við hann með ljósum og öllu útkalls búnaði.  Af þessu ástæðum er hugmynd að selja stóru kerruna, en um það hefur þó ekki verið tekin endanleg ákvörðun.</description>
Flugeldasala
Skotstjórar
      <description>Fveir nýir skotstjórarTveir félagar í Hjálparsveitinni sóttu námskeið á Ólafsfirði til að ná sér í réttindi til að kallast skotstjóri.Það gefur þeim réttindi til að meðhöndla sýningavörur fyrir flugeldasýningar.Til hamingju með þetta, strákar</description>
Kallmerki
      <description>Nýtt kallmerki sveitarinnar,  AÐALDALURVakin er athygli á því að nú er búið að ákveða að breyta kallmerki sveitarinnar. Frá stofnun sveitarinnar hefur kallmerki Hjálparsveitar skáta Aðaldal verið: "GEISLI" Þetta kallmerki kom til af því að við stofnun hennar var sveitin í nánu samstarfi við Ungmennafélagið Geisla í Aðaldal og kallmerkið "Geisli" þótti henta vel til nota í talstöðvasambandi við aðrar sveitir á svæðinu.  En nú eru breyttir tímar. Núna eru samskipti milli sveita miklu meira á landsvísu en á árum áður.   Björgunarsveitin Geisli er starfandi á Fáskrúðsfirði og notar einnig kallmerkið "Geisli", eðlilega.  Þetta getur valdið ruglingi þegar sveitirnar eru að störfum við sömu verkefni .   Hjálparsveitinni hefur borist erindi frá Björgunarsveitinni Geisla um það hvort við séum ekki til í að finna okkur annað kallmerki til að koma í veg fyrir rugling.  Aðalfundurinn ákvað að verða við þessari beiðni og ákvað jafnframt að kallmerkið skyldi héðan í frá vera "AÐALDALUR".      </description>
Úr tækjasal
      <description>Myndir teknar í tækjasal sveitarinnar. Sveitin er vel tækjum búin eins og sjá má.  </description>
Aðalfundur
      <description>Aðalfundur  Síðastliðinn þriðjudag, 2. desember,  var haldinn aðalfundur Hjálparsveitarinnar í húsnæði sveitarinnar í Iðjugerði. Alls mættu 13 manns á fundinn. Formaður flutti skýrslu stjórnar um starf sveitarinnar á síðasta starfsári hennar, en starfsárið er frá 01. júní hvers árs til 31. maí næsta árs.   Í máli formanns kom fram að mikill gangur hefur verið í sveitinni á síðasta ári.  Regluleg vinnukvöld eru tvisvar í mánuði yfir vetrartímann og auk þess eftir þörfum í tengslum við ýmis verkefni.  Alls voru skráð 26 vinnukvöld á árinu í dagbók sveitarinnar.  Alls voru skráðar 194 færslur í bókina og er þá ljóst að ekki ar allt skráð sem gert er.  Alls eru skráð 10 útköll á tímabilinu. Það er um að ræða allt frá aðstoð við ferðafólk vegna ófærðar til alvarlegra leita að týnsu fólki og jafnvel í öðrum landshlutum.  Unglingastarf hefur verið í gangi í samvinnu við Slökkvilið Þingeyjarsveitar , Rauðakrossinn og Þingeyjarskóla.  Æfingar og námskeið á starfsárinu voru að mestu haldin og skipulögð af félögum sveitarinnar.  Sveitin tók einnig þátt í flugslysaæfingu á Aðaldalsflugvelli. Sú æfing var skipulögð af Ísavía og Almannavörnum.  Í framhaldi af flugslysaæfingunni fékk sveitin stirk frá Ísavía til kaupa sjúkrabúnaði.  Seldur var einn sleði, Arctik cat 800 árgerð 2010 nýr sleði sömu gerðar keyptur í staðinn.    Tvö CanAm 600 fjórhjól sem sveitin átti árgerð 2007 voru seld og tvö ný keypt í staðinn . Þau hjól eru mun öflugri en eldri hjólin og mun betur búin.   Þá gerði gjaldkeri sveitarinnar grein fyrir reikningum.  Sveitarforingi, Hallgrímur Óli Guðmundsson, var endurkjörinn til eins árs.  Þá var kosið um tvo stjórnarmenn til tveggja ára. Marinó Aðalsteinsson baðst undan endurkjöri.  Árni Pétur Hilmarsson og Guðmundur Helgi Bjarnason hlutu kosningu í þessi sæti.  Stjórnina skipa þá eftir þennan aðalfund:  Hallgrímur Óli Guðmundsson, sveitarforingi.  Pétur Bergmann Árnason  Jóhann Ágúst Sigmundsson  Árni Pétur Hilmarsson   Guðmundur Helgi Bjarnason  Varamenn:  Arngrímur Jónsson   Hrannar Gylgason     Kallmerki sveitarinnar.  Frá stofnun sveitarinnar hefur kallmerki Hjálparsveitar skáta Aðaldal verið: "GEISLI" Þetta kallmerki kom til af því að við stofnun hennar var sveitin í nánu samstarfi vi Ungmennafélagið Geisla í Aðaldal og kallmerkið "Geisli" þótti henta vel til nota í talstöðvasambandi við aðrar sveitir á svæðinu.  En nú er öldin önnur. Núna eru samskipti milli sveita miklu meira á landsvísu en á árum áður.   Björgunarsveitin Geisli er starfandi á Fáskrúðsfirði og notar einnig kallmerkið "Geisli", eðlilega.  Þetta getur valdið ruglingi þegar sveitirnar eru að störfum við sömu verkefni .   Hjálparsveitinni hefur borist erindi frá Björgunarsveitinni Geisla um það hvort við séum ekki til í að finna okkur annað kallmerki til að koma í veg fyrir rugling.  Aðalfundurinn ákvað að verða við þessari beiðni og ákvað jafnframt að kallmerkið skyldi héðan í frá vera "AÐALDALUR".      </description>
Aðalfundur myndir
      <description> Frá aðalfundi Hjálparsveitar skáta Aðaldal, sem haldinn var 2. des.       </description>
Ótitlað
Ótitlað
      <description>Frá aðalfundi HSA.Breyting var í stjórn sveitarinnar. Ketill Indriðason sem hefur verið í stjórn undanfarin ár, gaf ekk kost á sér til áframhaldandi stjórnarsetu. Pétur Bergmann Árnason kom minn í stjórn í hans stað.Núverandi stjórn er þá þannig skipuð að Formaður er Hallgrímur Óli Guðmundsson.Með honum í stjórn er síðan Marínó Aðalsteinsson, Árni Pétur Hilmarsson, Jóhann Ágúst Sigmundsson og Pétur Bergmann Árnason.Stjórnin skiptir með sér verkum.Frá aðalfundinum</description>
Ótitlað
      <description>Nú stendur yfir aðalfundur hjálparsveitarinnar. </description>
Frétt á 641.is
      <description>641.is, sem er frétta og upplýsingavefur í Þingeyjarsýslu, hefur fjallað nokkuð um  starf Hjálparsveitarinnar að undanförnu. Ég vil benda á viðtal við sveitarforingjann okkar, sem birtist nú fyrir stuttu á 641.is. Sjá hér641.is</description>
Áfram flugeldasala
      <description>Vegna þess hvað veður og færð hamlaði fólki í að komast á flugeldamarkaðinn fyrir áramótin hefur verið ákveðið að vera með opna flugeldasölu fyrir þrettándann, 6. janúar.Flugeldasalan verður sem sagt opin á sunnudag frá 12 til 16.Enn er til nóg af dóti.</description>
Flugeldasala
      <description>Vegna veðurs og færðar hefur Hjálparsveit Skáta Aðaldal ákveðið að hafa opið í flugeldasölu  í dag,  gamlársdag. Verður opið frá 13:00-16:00 og að sjálfsögðu höfum við opið lengur ef þurfa þykir. Þeir sem hafa ekki enn  getað verslað flugelda fyrir kvöldið ættu að drífa sig.Allar nánari upplýsingar fást í síma 8617608 Baldur  8663586 Árni Pétur og 8640788 Kjartan T. </description>
Frétt tekin af 641.is
      <description>Raflína slitin í Ljósavatnsskarði29/12/2012 By HAHjálparsveit skáta Aðaldal, er búin að vera á ferðinni í nótt og í dag. Í gærkvöldið fóru félagar úr HSA upp á Hólasand til aðstoðar við ferðamenn sem voru þar fastir. Voru þeir ofarlega á sandinum og fylgdu HSA menn þeir upp í Mývatnssveit.Gert við slitna línu á Múlaheiði í september sl.Mynd: Hallgrímur Óli Guðmundsson.           Í morgun hafa félagar HSA verið að fara meðfram   raflínu frá Laxárvirkjun til Akureyrar, að beiðni Landsnets. Fundu þeir bilunina inni í Ljósavatsskarði, en þar var línan slitin.Viðgerðarflokkur er komin á staðin til viðgerðar og er töluverð ísing er á svæðinu að sögn Hallgríms Óla Guðmundssonar formanns HSA.</description>
Flugeldasala
Aðalfundur
      <description>Aðalfundur 4.12.2012  Aðalfundur Hjálparsveitarinnar var haldinn í húsnæði sveitarinnar þann 4. desenber síðastliðinn.  Alls mættu 16 félagar á fundinn. Farið var yfir starf sveitarinnar á liðnu ári. Það er ljóst að jafnmiklar annir hafa ekki verið frá stofnun sveitarinnar og á þessu ári. Kom fram að félagar sveitarinnar lögðu fram hátt í eitt þúsund vinnustundir í tengslum við óveðrið sem gekk yfir Norðurland í haust.    Í þessum aðgerðum reyndi ekki bara á mannskapinn. Tæki sveitarinnar fengu svo sanarlega að finna fyrir því og var ýmislegt úr lagi gengið þegar þessum aðgerðum lauk. Nokkur kostnaður verður af þessu fyrir sveitina að koma tækjabúnaði okkar í samt lag.  En Hjálparsveitin hefur jafnframt notið góðvildar í samfélaginu og hefur hún verið styrkt myndarlega af íbúum á svæðinu. Kvenfélögin í Aðaldal og Reykjahverfi hafa veitt styrki og einnig styrkti Kiwanisfélagið okkur.   Þá er sérstaklega að geta að börn í Hafralækjarskóla héldu aukasýningu á leikritinu Hafið bláa og gaf Hjálparsveitinni alla innkomu af þeirri sýningu.      Hjálparsveitin þakkar öllum þeim sem hafa stutt við bakið á henni og þann samhug sem henni hefur verið sýndur. </description>
Neyðarkall
      <description>Neyðarkall björgunarsveita Landsbjargar.Sala á Neyðarkallinum átti að standa yfir dagana 1. til 3. nóvember. Veðrið sem gekk yfir landið síðustu daga varð hins vegar til þess að sölu á kallinum var frestað og hefur staðið yfir í dag, sunnudag.Neyðarkall björgunarsveitanna þetta árið er formi kafara. </description>
Ótitlað
      <description>Almannavarnir hafa farið þess á leit við björgunarsveitir að þær skipuleggi áframhaldandi leit að fé á því svæði sem verst varð úti í norðanáhlaupinu um daginn.Sjá frétt í Mbl.is. </description>
Ótitlað
      <description>Útkall gulur.Leit að manni inanbæjar á Húsavík. Mæting í hús strax. Upplísingar í síma............ og svo framvegis.Þannig birjaði dagurinn. Félagar úr hjálparsveitinni mættu til Húsavíkur og tóku þátt í leit að öldruðum manni sem hafði farið að heiman i nótt og óttast var um. Um klukkutíma síðar var leitin afturkölluð þegar maðurinn hafði fundist.Þá var strax tekin stefnan á Þeistareyki til að halda áfram leit að kindum. Þar aðstoðaði hjálparsveitin fjárbændur við leit að kindum sem höfðu enni ekki mskilað sér þrátt fyrir mikla leit undanfarna daga.Töluverður fjöldi fjár fannst og var fénu komið til byggða.</description>
Fjárleit
      <description>Félagar úr hjálparsveitinn hafa verið við björgunaraðgerðir á Þeistareykasvæðinu í allan dag. Sleðar og fjórhjól sveitarinnar hafa verið á ferðinni og einnig er bíll sveitarinnar á svæðinu.Búið er að finna um 400 fjár og er verið að flytja það til byggða á vögnum.</description>
Fjárleit
      <description>Nú er formlegum aðgerðum lokið. Félagar úr Hjálparsveitinni aðstoðuðu bændur við að reka safnið til byggða. Notaður voru vélsleðar og fjórhjól sveitarinnar við reksturinn og bíll sveitarinnar fylgdi rekstrinum. Ljóst er að enn vantar margt fé af afréttinum og verður leit haldið áfram eftir því sem færi gefst.  Hér lagt af stað með safnið á þjóðveginum ofan við Geitafell</description>
Fjárleit
      <description>Björgunaraðgerð stendur enn yfir.Enn standa yfir björgunaraðgerðir á Þeistareykjasvæðinu. Þrátt fyrir að þeir sem lengst eru búnir að vera í aðgerðum væru beðnir að taka  því rólega í dag og safna kröftum að nýju eru þessir menn áfram í aðgerðunum í dag. Menn á sjö sleðum  á vegum hjálparsveitarinnar eru áfram við leit og björgun. Menn keppast við að finna sem flest fjár  í kapphlaupi við tímann. Björgunarsveitir víða að af landinu eru hér á svæðinu og taka þátt í björgunaraðgerðum.Aðgerðunum er stjórnað af aðgerðastjórn á  Lögreglustöðinni á Húsavík, þar sem  um almannavarnaástand er að ræða. Þ.R.</description>
Fjárleit
      <description>Fjárleit á Þeistareykjum og víðar.Nú er flokkur frá Hjálparsveitinni við leit að fé á Þeistareykjasvæðinu. Mannaðir eru allir sleðar sveitarinnar og auk þess einkasleðar hjálparsveitarmanna. Einnig er fjórhjól á beltum notað í aðgerðinni.Mikill fjöldi björgunarsveitarmanna er við leit og hafa björgunarsveitir komið langt að til leitar. Búið er að fara yfir mjög stórt svæði og bjarga hundruðum kinda úr fönn. Leit heldur áfram. Hér má sjá hvernig björgunarsveitarmenn dreifast um svæðið.</description>
Óveður
      <description>Útkall - F3 Grænn. Leit að kindum á Þeistareykjum og Reykjaheiði.Aðaláhersla er lögð á tækjaflokka.</description>
Óveður
      <description>Tækjaflokkur Hjálparsveitarinnar var í aðgerðum á Þeistareykjasvæðinu til aðstoðar við fjáreigendur við að bjarga kindum úr fönn. Farið var á vélsleðum og beltahjólinu</description>
Óveður
      <description>Bíll hjálparsveitarinnar var sendur upp á Fljótsheiði og síðan upp í Mývatnssveit til að aðstoða vegfarendur í mikilli ófærð og mjög slæmu veðri. Norðan Mývatns komum við að þar sem raflínan lá niður í jörð og þurfti að klippa á rafstrengina til að þeir sköpuðu ekki hættu fyrir vegfarendur. Þá hafði bíll farið útaf veginum á Mývatnsheiði og var hann spilaður upp á veginn.         Á sama tíma var flokkur úr hjálparsveitinni að aðstoða Rarik menn á Múlaheiðinni við viðgerðir á raflínum.</description>
Óveður
      <description>ÓveðurVersta veður hefur nú gengið yfir landið síðan í gærkvöldi. Mikil úrkoma og hvassviðri. Á láglendi hefur verið mikil rigning, en svókoma þegar hærra dregur. Ísing hefur slitið raflínur og er nú víða rafmagnslaust á  norðausturlandi. Félagar úr hjálparsveitinni fóru að beiðni Rarik upp á Múlaheiðina til að kanna raflínur. Farið var á þremur fjórhjólum og leitað að bilun. Þarna á heiðinni komu þeir að slitinni raflínu og var mikil ísing á línunum.Þ.R.</description>
Útkall
      <description>Nú er alvaran í gangi.Kl. 10:40Nú var að berast útkall frá 112:Slys á sjó, á Skjálfanda. Farþegabátur strandaður við Lundey á Skjálfanda.37 manns eru um borð. Nú er gott veður hér á svæðinu, hægviðri og stilltur sjór. Samkvæmt flóðatöflu verður háflóð klukkan 11:38.Kl. 10:54Nú komu boð frá 112 um að viðbragðsaðilar verði í viðbragðsstöðu.Aðgerða er ekki þörf eins og er.Beðið frekari fyrirmæla.Kl.11:46Nú var viðbragðsáætlun vegna strandsins afturkölluð.Allir eru komnir í land heilu og höldnu.Þ.R.</description>
Almannavarnaæfing
      <description>Laugardaginn 9. júní var haldin almannavarnaæfing á svæði 12.  Æfingin gekk út á það að hvalaskoðunarbátur er staddur úti á Skjálfanda um 5 sjómílur frá Húsavíkurhöfn. Um borð eru 30 - 40  manns.  Boð berast frá hvalaskoðunarbátnum um  neyðrrás  VHF um að hann sé vélaravana með 30 -35 manns um borð, að aðstæður séu í góðu lagi og að sennilega þurfi þeir ekki aðstoð þar sem bilunin sé minniháttar og að skamma stund taki að laga bilunina. Stjórnstöð LHG móttekur boðin og gerir Neyðarlínu viðvart sem sendir út boðun um óvissustig.    Þá berast neyðarboð  frá hvalaskoðunarbátnum um að mikill eldur sé kominn upp um borð, að enn sé báturinn vélarvana og að hópur fólks sé slasaður. Áhöfnin óskar eftir tafarlausri aðstoð þar sem hún ræður ekki við eldinn.    Allir viðbragsaðilar á svæðinu voru virkjaðir. Fullt af myndum í albúmi.</description>
Útkall rauður
      <description>Sleðasveit Hjálparsveitarinnar var kölluð út klukkan 15:59  í dag með forgangi F1 Rauður.  Alvarlegt vélsleðaslys hafði orðið um einn km. norður af Heiðarhúsum á Flateyjardalsheiði.  Hinn slasaði var fluttur í Heiðarhús  og sótti þyrla hann þangað.  </description>
Ótitlað
      <description>Útkall. Leit að erlendum ferðamanni á Suðurlandi.Nú stendur yfir víðtæk leit að erlendum ferðamanni á Sólheimajökli og svæði þar í kring.Mikill fjöldi björgunarsveitarmanna hefur tekið þátt í leitinni. Má segja að björgunarsveitarmenn komi af öllu landinu. Sólheimajökull er hættulegur yfirferðar, mikið sprunginn skriðjökull og eru ekki sendir þangar nema vanir fjallabjörgunarmenn.Fjöldi manna er einnig við leit í nágrenni jökulsins og leitarhundar eru að störfum á svæðinu.Ekki hefur verið tekin ákvörðum um hvort fleiri fari úr Hjálparsveitinni.Pétur og Simbi eru komnir suður og taka virkan þátt í leitinni.</description>
Aðalfundur 2011
      <description>Aðalfundur Hjálparsveitar skáta Aðaldal var haldinn í gær 8. nóvember.4 nýir félagar gengu í sveitina. Og eru þeir sérstaklega boðnir velkomnir.Engin breyting varð í stjórn og er hún nú skipuð sem hér segir:Sveitarforingi:Hallgrímur Óli GuðmundssonAðrir í stjórn:Árni Pétur HilmarssonMarinó AðalsteinssonKetill IndriðasonJóhann Ágúst SigmundssonAð loknum venjulegum aðalfundarstörfum flutti fulltrúi frá Björgunarskólanum kynningu á fjarnámi og öðru námi við skólann</description>
Ótitlað
      <description>NEYÐARKALLNú stendur yfir sala á Neyðarkalli björgunarsveitanna.Sala neyðarkallsins er mikilvæg fjáröflun fyrir björgunarsveitirnarVið hvetjum alla til að taka vel á móti sölufólki og styrkja björgunarsveitirnar í Landsbjörg með því að kaupa Neyðarkall.</description>
Útkall
      <description>Útkall F2Hjálparsveitin fékk hjálparbeiðni vegna manns sem hafði verið í göngum í Kinn og þurfti að bera hann til byggða.</description>
Útkall
      <description>Útkall F3Síðdegis 8. september gerði hríðarveður seinnipartinn og varð Hólasandur þungfær. Ferðamenn kölluðu eftir aðstoð þegar bíll þeirra sat fastur í snjó. Töluverður snjór var þarna og aðstoðaði Hjálparsveitin  við að koma ferðalöngum og bíl þeirra til byggða.</description>
Útkall
      <description>112 útkall gulur.Í dag var Hjálparsveitin kölluð út, þar sem gólf í fjárhúsunum í Fagraneskoti brast og féll féð niður í áburðarkjallara. Fimm kindur drápust í fallinu. Nokkurn tíma tók að hreinsa til og koma fénu út úr kjallaranum.</description>
Ótitlað
      <description>Það voru 3 félagar úr HSA, þeir Garðar, Árni Pétur og Jóhann Ágúst, og svo Reynir Hilmarsson frá Húsavík sem að fóru upp Heilagsdal ,austur og suður á Kollóttudyngju og suður með Dyngjufjöllum suður á Vaðöldu og svo yfir Flæðurnar inn í Kverkfjöll. Það var svo gist í Sigurðarskála og sama leið farin heim daginn eftir. Það kom upp smá vandamál þegar að aftasta búkkahjól týndist úr Yamaha og hann var dreginn síðustu 12-15 km inn í skála. Það var svo tekið eitt hjól úr ski-doo og sett undir hann og þannig komst hann heim.  Þetta átti að verða helgarferð og taka þátt í að éta Þorramat með félögum úr 4x4 frá Hornafirði á laugardagskvöldi, en þar sem að allar verðuspár voru frekar sammála um afleitt veður frá og með seinni parti á laugardegi var ákveðið að flýta heimferð.  Kv.Garðar</description>
Ótitlað
      <description>ErindreksturÍ kvöld mætti Smári Sig frá Akureyri og hélt fyrirlestur fyrir björgunarsveitarmenn á svæðinu. Smári er varaformaður Slysavarnafélagsins Landsbjargar. Ágætlega var mætt og komu einnig fálagar okkar úr nágrannabjörgunarsveitum til að heyra boðskap Smára. Smári kom víða við í erindi sínu, sem fyrst og fremst snérist um það hvernig við, félagar í S.L., eigum að haga okkur undir merkjum samtakanna og þá kanski frekar hvernig við eigum ekki að haga okkur. Gott spjall var svo að fyrirlestri loknum um ýmis málefni og atriði þessu tengt.</description>
Ótitlað
      <description>Nýr vélsleði hjá Hjálparsveitinni.Hjálparsveitin hefur fjárfest í nýjum vélsleða. Að þessu sinni varð fyrir valinu sleði af gerðinni Arctic Cat 800 Crossfire. Þetta er fyrsti A.C. sleðinn sem Hjálparsveitin eignast frá upphafi. Framundan er svo að útbúa sleðann þannig að hann henti fyrir verkefni sveitarinnar.</description>
Ótitlað
      <description>Flugeldasala Hjálparsveitarinnr gekk vel fyrir þessi áramót. Má segja að allt hafi selst upp. Hjálparsveitin þakkar fyrir þann stuðning sem henni hefur verið sýnd með flugeldakaupum.</description>
Flugeldasýning
      <description>Flugeldasýning 29.12.2010Eins og undanfarin ár var ar Hjálparsveitin með flugeldasýningu í tengslum við jólaball kvenfélaganna í Aðaldal. Eins og við var að búast tókst sýningin vel í alla staði.</description>
Flugeldasala
      <description>Árleg flugeldasala Hjálparsveitarinnar er aðalfjáröflunarleið hennar. Því er áríðandi að allt gangi samkvæmt áætlun og salan gangi vel. Undirbúningur fyrir flugeldasöluna hefst fljótlega upp úr áramótum hverju sinni þegar gerð er pöntun á flugeldavörum fyrir næstu flugeldasölu. Nú eru flugeldarnir komnir á svæðið og í kvöld var húsnæðið tekið í gegn fyrir flugeldamarkaðinn. Gólfið skúrað vandlega, tekið til á vinnuborðinu og tækin okkar flutt í annað húsnæði með húsið er lagt undir flugeldamarkaðinn.</description>
Aðalfundur
      <description>AðalfundurAðalfundur Hjálparsveitarinnar var haldinn í kvöld 11.11. í húsnæði sveitarinnar í Iðjugerði.Hallgrímur Óli var kosinn sveitarforingi til næsta árs.Kjartan Trausta og Árni Pétur áttu að ganga úr stjórn að þessu sinni. Kjartan gaf ekki kost á sér til endurkjörs, en  Árni Pétur var endukjörinn og nýr í stjórnina kom Marínó Aðalsteinsson.Þessir sitja þá í stjórn:Hallgrímur Óli GuðmundssonÁrni Pétur HilmarssonMarínó AðalsteinssonJóhann Ágúst Sigmundsson ogKetill IndriðasonGjaldkeri fór yfir reikninga sveitarinnar og formaður flutti samantekt um starf sveitarinnar á liðnu ári. Eftir fasta liði var síðan rætt starfið framundan. Meðal annars var rætt um áframhald á árlegu eldvarnaátaki sem sveitin hefur haldið uppi undanfarin ár. Nú felst vinnan einkum í að endunýja rafhlöður í reykskinjurum hjá fólki. Þá var rætt um flugeldasöluna og hvort ástæða væri til einhverra breytinga í fyrirkomulaginu þar. Ýmislegt fleira var svo rætt, sem ekki er tíundað hér.Frá aðalfundinum </description>
Neyðarkall
      <description>NeyðarkallinnNú stendur yfir sala á neyðarkallinum. Um er að ræða árlega fjáröflun björgunarsveita Landsbjargar.Félagar Hjálparsveitarinnar fara nú um sölusvæði sveitarinnar og bjóða fólki neyðarkallinn til kaups.Hver neyðarkall kostar 1500 krónur. Þetta er ekki há upphæð, en skiptir sveitina miklu. </description>
Ótitlað
      <description>Vinnukvöld í kvöld</description>
Mýrdalsjökull
      <description>Við fórum 4 félagar úr björgunarsveitinni Stefáni í Mývatnssveit og Hjálparsveit skáta Aðaldal í frábæra ferð frá Mýri í Bárðardal á Mýrdalsjökul til þess að skoða Eldgos. Við fórum á 4 vélsleðum. Þetta voru Nafnarnir Kristján og Kristján þ.e.a.s. Krissi og Stjáni Stebba úr Mývatnsveit ,Árni Pétur og Jóhann Ágúst. Garðar Héðinsson var einnig með í för en þurfti frá að hverfa u.þ.b. 40 km inná sprengisandi sökum bilunar í drifbúnaði í sleðanum.  Dagurinn var tekinn snemma enda var ætlun okkar að leggja af stað frá Mýri ekki seinna en kl. 9. Þetta gekk nú ekki alveg eftir en við vorum komnir af stað á sleðunum kl 11. Ljóst var frá upphafi að þetta yrði erfið ferð enda ákveðið að við ætluðum einungis að gista eina nótt. Og æltuðum því að aka suður, skoða gosið, gista og nota svo fimmtudaginn til þess að aka heim. Við tókum með okkur aftaní sleða og vorum með 150l af eldsneyti á honum, þar fyrir utan vorum við að bera 40-50L á hverjum sleða.  Ferðin gekk vel uppfrá Mýri, talsvert af nýsnævi og þar sem var þunnt niður á grjót og færið nokkuð þungt þá tók á fyrir yaman að draga eldsneytis kerruna. Þetta gekk þó vel, fyrir utan Garðar sem fékk að snúa við einn síns liðs á biluðum sleða niður í Mýri, við létum vita af honum þannig að hann yrði sóttur ef hann myndi ekki skila sér á tilsettum tíma. Við fórum hefðbundna sprengisandsleið, komumst meira segja yfir lænuna í kiðagilsdrögum á snjóbrú, sem kom sér vel þar sem við vorum með kerru í eftirdragi. Stefnan var svo tekin beint í Sandbúðir og þaðan beint yfir fjórðungsvatn og í Nýjadal. Þá voru fyrstu 100km að baki og við helltum eldsneyti af kerrunni (fylltum alla sleða) og skildum kerruna eftir.  Þarna var veðrið tekið að versna á okkur og var orðin talsverður strekkingur og fjúk af jöklinum þannig að skyggni var ekki gott, við tókum stefnuna beint á Hágöngur og komumst út úr veðrinu þar. Svo ókum yfir Hágöngulón þaðan ókum við í Sylgjufell . Þessi partur leiðarinnar var snjóléttastur og talverður þræðingur utan með og í gegnum hágönguhraun. Frá Sylgjufelli ókum við beint í Jökulheima þar vorum við komnir í glansbjart og fallegt veður,  tókum þá nestisstopp. Þar var smá bilerí á Lynx en það skekktist skíðabilið eftir að ekið var á stein sem vildi ekki gefa sig. Tókst vel til með viðgerðir og stefnan tekin beint í Glaðheima, ekkert var stoppað þar en stefnan tekin beint áfram á Mýrdalsjökul , inná hann miðjan og svo út á Fimmvörðuháls.  Við komum út að gosi rétt um 8 leytið rétt eftir að ný gossprunga opnaðist, og vorum settir beint í vinnu af svæðisstjórn við að rýma jökulinn. Það var ekki auðvelt verk og fólk alls ekki á því að yfirgefa svæðið, það var svolítið skrítið að segja fólki að það sé hætta til staðar og það þurfi að fara og það horfir í augun á manni og segir "já ég veit" snýr sér svo við og heldur áfram að ljósmynda og dúlla sér, án þess að sýna á sér nokkrut fararsnið. Allt gekk það þó að lokum og við yfirgáfum gosstöðvarnar og fórum í herbúðir Benna í Sólheimum og fengum þar bensín og héldum svo áfram för okkar.  Við höfðum fengið inni í Grænuvötnum og tókum stefnuna þangað og ókum það í einni lotu og vorum komnir í skála milli eitt og tvö. Vorum við þá orðnir nokkuð fram lágir enda búnir að vera á ferðinni síðan kl. 7 um morguninn og búnir að leggja að baki rétt um 400 km þann daginn. Við leyfðum okkur að sofa út fórum á fætur rétt um 11 leitið í glansbjörtu og fallegu veðri, komumst við að því að Yaminn hafði týnt aftasta búkkahjólinu og fór þá talsverður tími í viðgerðir. Þar sem enginn skýhnoðri var á himni þá lékum við okkur talsvert á heimleiðinni og fórum uppá nokkur fjöll til þess að fá okkur útsýni á heimleiðinni. Það var bjart á okkur alla leiðina í hágöngur en eftir það fengum við leiðinda veður með meters til nokkra metra skyggni alla leiðina í sandbúðir. Þegar þar var áð sáu félagar okkar sér til undrunar að það var komið  gott veður en þeir höfðu ekkert skilið í því hvað ekið var greitt síðasta spölinn að Sandbúðum þar sem skyggni var nánast ekkert en sannleikur málsins var sá að hjálmarnir voru orðnir svo hrímaðir að lítið sást út. Svo fengum við glansbjart og flott veður alla leið niður í Mýri en þangað vorum við að koma um sjöleitið og þá rúmir 600 km að baki á einum og hálfum sólarhring. Frábær ferð í alla staði enda vorum við jafn heppnir með veður eins og hægt var, það var bara vont veður þar sem hættur eru fáar og við þekktum ágætlega til. En eins og sumir kunna að sjá á skrfum mínum þá þekki ég ekki vel til, sunnan til á landinu og hef sjaldan ferðast  um þetta svæði, enda var þetta frábær upplifun fyrir mig. Árni Pétur Hilmarsson </description>
Simbi náði prófinu
      <description>Nú á dögunum útskrifaðist leitarhundurinn Simbi, sem fullgildur leitarhundur. Hann, með eiganda sínum Pétri Bergmann starfar í okkar röðum.Reyndar eiga félagar okkar í Súlum töluvert í þeim félögum, því þeir hafa starfað með þeim um árabil. En Pétur flutti í  Aðaldal fyrir nokkru og fór að starfa með okkur.Það þarf ekki að fjölyrða um það að þetta er afar mikilvægt fyrir okkur og okkar starf, bæði að fá Pétur til liðs við okkur og einnig leitarhundinn Simba.Óskum við þeim félögum innilega til hamingju með þennan árangur.Engar myndir á ég frá þessu, en bendi á vefinn: http://www.leitarhundar.is/Heim/ HÓG</description>