11.11.2011 10:47
Ótitlað
Nú stendur yfir víðtæk leit að erlendum ferðamanni á Sólheimajökli og svæði þar í kring.
Mikill fjöldi björgunarsveitarmanna hefur tekið þátt í leitinni. Má segja að björgunarsveitarmenn komi af öllu landinu. Sólheimajökull er hættulegur yfirferðar, mikið sprunginn skriðjökull og eru ekki sendir þangar nema vanir fjallabjörgunarmenn.
Fjöldi manna er einnig við leit í nágrenni jökulsins og leitarhundar eru að störfum á svæðinu.
Ekki hefur verið tekin ákvörðum um hvort fleiri fari úr Hjálparsveitinni.
Pétur og Simbi eru komnir suður og taka virkan þátt í leitinni.
09.11.2011 12:20
Aðalfundur 2011



05.11.2011 19:21
Ótitlað
10.09.2011 12:06
Útkall
08.09.2011 11:57
Útkall
27.03.2011 22:43
Útkall
10.03.2011 20:34
Ótitlað
Það voru 3 félagar úr HSA, þeir Garðar, Árni Pétur og Jóhann Ágúst, og svo Reynir Hilmarsson frá Húsavík sem að fóru upp Heilagsdal ,austur og suður á Kollóttudyngju og suður með Dyngjufjöllum suður á Vaðöldu og svo yfir Flæðurnar inn í Kverkfjöll. Það var svo gist í Sigurðarskála og sama leið farin heim daginn eftir. Það kom upp smá vandamál þegar að aftasta búkkahjól týndist úr Yamaha og hann var dreginn síðustu 12-15 km inn í skála. Það var svo tekið eitt hjól úr ski-doo og sett undir hann og þannig komst hann heim.
Þetta átti að verða helgarferð og taka þátt í að éta Þorramat með félögum úr 4x4 frá Hornafirði á laugardagskvöldi, en þar sem að allar verðuspár voru frekar sammála um afleitt veður frá og með seinni parti á laugardegi var ákveðið að flýta heimferð.
Kv.Garðar
